Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Samstarfssamningur gerður við SÍS á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála
03. 05. 2024Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) hafa gert með sér...
Baráttan við loftslagsbreytingar af mannavöldum er meðal þeirra viðfangsefna sem ber hvað hæst í umhverfismálum.
Helstu orsaka loftslagsbreytinga er að leita í aukningu svokallaðra gróðurhúsalofttegunda í lofthjúpi jarðar. Styrkur koltvíoxíðs (CO2), einnig nefnt koltvísýringur, hefur aukist um þriðjung frá því við upphaf iðnbyltingar, en koltvíoxíð er sú gróðurhúsalofttegund sem mest er af. Aukning koltvíoxíðs stafar af bruna jarðefnaeldsneytis (þ.m.t. kola, jarðgass og olíu) sem er mest notaði orkugjafi mannkyns. Meðan losun gróðurhúsalofttegunda er ekki takmörkuð með einhverjum hætti mun magn þeirra í lofthjúpnum halda áfram að aukast.
Helstu áhrif loftslagsbreytinga eru m.a. breytingar á hitastigi jarðar, öfgar í veðurfari, bráðnun jökla, þurrkar og hækkun sjávarborðs. Jafnframt verða breytingar í höfum þar sem hafstraumar breytast, samhliða sýrustigi og seltu sem hafa mikil áhrif á búsvæði þeirra lífvera sem lifa í sjónum.
Alþjóðleg samvinna um loftslagsmál grundvallast á Loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna.
Loftslagsbreytingar eru nú þegar farin að hafa áhrif á íslenskt samfélag og lífríki.
Ísland hefur sett sér skýr markmið í loftslagsmálum og er vinna hafin við allar 50 aðgerðir áætlunarinnar.
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) hafa gert með sér...
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Með nýtingu nýrra orkugjafa og bættri orkunýtni eru umtalsverð tækifæri til að auka orkuöryggi og...